Sjávarútvegsmál, kvótafrumvarpið, veiðigjald og strandveiði verða umræðuefni kvöldsins á opnum fundi í Félagsheimili Patreksfjarðar í kvöld.
Á meðal frummælenda verður þingmaðurinn Einar K. Guðfinnsson og fulltrúar útgerðarinnar, Sigurður Viggósson og Ari Hafliðason.
Shiran Þórisson, framkvst. Atvest, verður á meðal frummælenda en sjávarútvegur og samkeppnishæfni Vestfjarða hefur verið honum sérstaklega hugleikin.
Forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, Friðbjörg Matthíasdóttir lokar svo frummælendalistanum og tekur fyrir áhrif á Sveitafélagið.
Búast má við líflegum umræðum þar sem um er að ræða lífæð byggða á Vestfjörðum.
Fundurinn hefst kl. 20 í kvöld. Heitt á könnunni.
Prentvæn útgáfa